Kótelettan Music Festival heldur upp á 15 ára afmæli sitt helgina 11.-12. júlí nk. með glæsilegri tónlistarveislu að venju þar sem yfir 30 íslenskir tónlistarflytjendur stíga á stokk og halda gleðinni á lofti fram á nótt, heiðursgestur hátíðarinnar í ár er enginn annar en okkar ástsæli Björgvin Halldórsson. ,,Líkt og undanfarin ár hafa undirtektir verið vonum framar og stefnir allt í stórskemmtilega afmælishátíð,, segir Einar Björnsson, stofnandi og framkvæmdarstjóri hátíðarinnar.
Stærra hátíðarsvæði
,,Í tilefni tímamótanna verður hátíðarsvæðið stækkað verulega því markmiðið er að skapa enn betri upplifun fyrir gesti með betri aðstöðu og meira plássi,, segir Karen Lind Einarsdóttir, viðburðarstjóri Kótelettunnar. Þessi framkvæmd er gerð í góðu samstarfi við nágranna okkar í Frumherja og Bílanaust og erum við þeim afar þakklát fyrir þeirra aðkomu að hátíðinni. líkt og öðrum fyrirtækjum hér á svæðinu. Skipuleggjendur leggja þó áherslu á að ekki verður bætt við aðgöngumiðum – markmiðið er aukin þægindi, ekki fjölgun gesta.
Glæsilegt matartorg
Í fyrsta sinn verður Matartorgið hluti af hátíðarsvæðinu. Auk matarvagna ætlar knattspyrnudeild UMF Selfoss að taka þátt í gleðinni og vera með stórt matartjald á torginu. „Við erum ákaflega spennt fyrir verkefninu og við stefnum á að þetta verði ein af okkar stærstu fjáröflunum í framtíðinni og vonumst við til þess að gestir hátíðarinnar verði solgnir í þær veitingar sem við munum bjóða upp á,” segir Atli Marel Vokes formaður deildarinnar. Á matartorginu verða einnig borð og bekkir þar sem gestir geta sest niður, borðað og hvílt lúna dansfætur.
Hátíðarhaldarar hvetja alla til að leggja leið sína á Selfoss og njóta afmælisins – þar sem gleðin verður í loftinu og eitthvað fyrir alla.