15.6 C
Selfoss

125 keppendur á Héraðsleikum og Aldursflokkamóti HSK

Vinsælast

Héraðsleikar 10 ára og yngri og Aldursflokkamót HSK 11-14 ára fóru fram dagana 24. -25. júní síðastliðinn á Selfossvelli. Á Héraðsleikana mættu 75 keppendur til leiks frá sex félögum og voru margir að stíga sín fyrstu skref á keppnisvellinum. Allir þátttakendur fengu verðlaunapening að móti loknu og var leikgleðin í fyrirrúmi þrátt fyrir rigninguna.

50 keppendur mættu til leiks á aldursflokkamótið frá átta félögum og var mikið um bætingar á mótinu. Keppt var um verðlaun fyrir stigahæsta félagið auk verðlauna fyrir stigahæstu félögin samkvæmt aldursflokkum. Stigahæsta lið 11 ára var Umf. Þjótandi með 70 stig, í flokki 12 ára sigraði Íþrf. Dímon með 121 stig, 13 ára flokkinn sigraði Umf. Selfoss með 91 stig sem er aðeins einu stigi betur en Íþfr. Dímon og 14 ára flokkinn sigraði Umf. Selfoss örugglega með 173 stig. Heildarstigakeppnin fór þannig að Umf. Þjótandi var í þriðja sæti með 145 stig, Íþrf. Dímon var í öðru sæti með 247 stig og Umf. Selfoss sigraði með 377 stig. Hápunktur mótsins var keppni í 4×100 m blönduðu boðhlaupi en þá þurfa sveitirnar að vera skipaðar bæði piltum og stúlkum. Að hafa boðhlaupið blandað gefur fámennari liðum kost á að ná í sveit og það voru 8 sveitir frá fimm félögum sem tóku þátt. Sveit Selfoss A sigraði hlaupið, Dímon B var í öðru sæti og Selfoss B í því þriðja.

Næsta HSK-mót er Héraðsmót fullorðinna 15.–16. júlí en mesta spennan er fyrir Meistaramóti Íslands aðalhluta sem fer fram á Selfossvelli 22.–24. júlí en HSK heldur mótið.

Nýjar fréttir