15.6 C
Selfoss

Daði Berg nýr þjálfari Hamars

Vinsælast

Körfuknattleiksdeild Hamars hefur ráðið Daða Berg Grétarsson sem aðalþjálfara meistaraflokks karla.

Daði Berg og Grétar Freyr Gunnarsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hamars, hafa undirritað samning til ársins 2027. Hamar er í fyrstu deild en var í harðri baráttu um sæti í efstu deild á liðinni leiktíð.

Daði kom fyrst til liðsins árið 2022 og spilaði með Hamri til 2024. Á síðustu leiktíð var hann svo aðstoðarþjálfari Halldórs Karls Þórssonar.

,,Ég hef mikinn metnað fyrir þessu verkefni og ástríðu fyrir klúbbnum. Spennandi hópur af leikmönnum sem ég hlakka til að vinna með og hjálpa við að þróa þeirra leik. Markmiðið er að byggja ofan á það góða starf sem hefur verið unnið og skrifa nýjan kafla í leiðinni” segir Daði Berg en hann hvetur um leið alla Hvergerðinga til að mæta á völlinn og láta í sér heyra á næsta tímabili.

Nýjar fréttir