Þrettán HSK-met og eitt brautarmet voru sett í Bláskógaskokkinu sem haldið var 15. Júní sl.
Fjóla Signý Hannesdóttir bætti HSK-metið í kvennaflokki í Bláskógaskokkinu í 5 mílna hlaupinu. Hún kom fyrst kvenna í mark á tímanum 41,37 mín. og bætti fimm ára gamalt met Guðnýjar Hrundar Rúnarsdóttur um 61 sek, en metið var 42,38 mín. Fjóla setti einnig HSK-met í flokki 35-39 ára kvenna.
Anna Metta Óskarsdóttir frá Selfossi bætti eigið HSK-met í 5 mílna hlaupinu í fjórum aldursflokkum frá 15 til 22 ára. Hún hljóp á 43,01 mín., en hún átti 44,27 mín. frá árinu 2023.
Andri Már Óskarsson bróðir Önnu setti HSK-met í sjö flokkum í 10 mílna hlaupinu. Ekki voru skráð HSK-met í flokkum 12 ára til 18-19 ára þar sem enginn keppandi af HSK-svæðinu, svo ungur, hefur hlaupið þessa vegalengd fyrr svo vitað sé. Andri hljóp á 1;20,38 klst. Andri bætti svo metið í flokki 20-22 ára um níu sekúndur, en Magnús Bjarki Snæbjörnsson átti HSK-metið í þeim flokki sem var 1;20,47 klst., sett árið 2012.
Eitt brautarmet var bætt í hlaupinu í ár. Daníel Snær Eyþórsson kom fyrstur í mark í karlaflokki í 5 mílna hlaupinu á 29,57 mín og bætti þar með brautarmet Sigurðar Ingvarssonar um eina sekúndu, en Sigurður hljóp á 29,58 mín bæði árin 2023 og 2024.
Sérverðlaun frá versluninni Fætur toga voru veitt fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hlaupinu í báðum vegalengdum. Einnig voru veitt nokkur útdráttarverðlaun frá Fætur toga.
„HSK þakkar eiganda fyrirtækisins, henni Fjólu Signýju Hannesdóttur, kærlega fyrir stuðninginn og aðstoð. Einnig þökkum við Fontana á Laugarvatni fyrir stuðninginn. Við þökkum almenningsíþróttanefnd HSK og öðrum sjálfboðaliðum fyrir góða framkvæmd á hlaupinu,“ segir í tilkynningu frá HSK.