ÞARAR II „Olía á striga“ er málverkasýning Ástu Vilhelmínu Guðmundsdóttur í tilefni Jónsmessuhátíðar á Eyrarbakka. Ásta sýnir aðallega stór olíumálverk sem hún hefur unnið á Eyrarbakka síðastliðin ár.
Sýningin er upphafið af OCEANUS Hafsjó í ár, sem er fjórða alþjóðlega listahátíðin sem haldin hefur verið á Eyrarbakka frá árinu 2022. Í ár heitir hátíðin „Báruvottur“.

Sýningin verður 21. júní í Bláu skemmunni á horni Túngötu og Bakarísstígs á Eyrarbakka. Hún stendur frá 13.00-17.00.
Sýningin verður síðan opin samkvæmt samkomulagi.