14.5 C
Selfoss

Jóhann Karl nýr verkefnastjóri viðburða og grasrótar Viðreisnar

Vinsælast

Jóhann Karl Ásgeirsson Gígja hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri viðburða- og grasrótarstarfs á skrifstofu Viðreisnar.

Jóhann Karl er 28 ára Hvergerðingur og hefur verið í Viðreisn frá stofnun flokksins. Hann hefur tekið að sér ýmis verkefni fyrir flokkinn. Hann var meðal annars kosningastjóri í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar 2021 og dagskrárstjóri kosningabaráttunnar 2024.

„Það er mikill heiður að vera treyst fyrir svona mikilvægu starfi og ég get ekki beðið eftir því að hefjast handa”, segir Jóhann. “Ég á ekki bara samleið með málefnum Viðreisnar, með sína áherslu á frjálslyndi og mikilvægi þess að horfa á alþjóðamál og stöðu Íslands á þeim vettvangi, heldur hef ég í gegnum störf mín fyrir Viðreisn fundið hvað fólkið í flokknum er bæði skemmtilegt og ábyrgt.“

Mikill áhugi var á starfinu, þegar það var auglýst í upphafi árs en rúmlega 70 manns sóttu um starfið.

Nýjar fréttir