Flóahreppur veitti verðlaun fyrir vinningstillögur í samkeppni um nöfn í nýrri íbúðarbyggð á hátíðinni Fjör í Flóa sem fram fór um helgina. Sveitarstjórn ákvað í vor að efna til nafnasamkeppni á tveimur götum í nýrri íbúðarbyggð við Þingborg. Byggðin mun liggja meðfram Volanum sem liggur austan megin við fyrirhugaða byggð. Svæðið hefur verið skilgreint sem íbúðarbyggð í aðalskipulagi frá því aðalskipulag Hraungerðishrepps fyrir árin 2003-2015 var unnið.
Gert er ráð fyrir um 60 íbúðum í núverandi skipulagi og verða lóðir í boði fyrir raðhús, parhús og einbýlishús. „Við finnum fyrir miklum áhuga á svæðinu enda örstutt í alla innviði svo sem greiðar samgöngur, leikskóla og grunnskóla,“ segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu.
Alls bárust 19 tillögur um hvora götu í nafnasamkeppninni. Sveitarstjórn óskaði eftir aðilum úr hópi íbúa 60 ára og eldri til að fara yfir tillögurnar og skilaði hópurinn þremur tillögum um hvora götu til sveitarstjórnar.
Vinningshafar í nafnasamkeppninni voru þær Sigurbjörg K. Óskarsdóttir og Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir.
Sigurbjörg skilaði inn tillögunni Þingmói fyrir götu sem liggur í langri skeifu í byggðinni. Nafnið passar vel enda byggðin umkringd móa og í nafninu felst tenging við Þingborg.
Hallfríður Ósk skilaði inn tillögunni Þingbrú og mun stutt gata sem tengir byggðina saman í miðjunni hljóta það nafn og segja má að stutta gatan sé eins konar brú í miðri byggðinni.
Í verðlaun hlutu þær plöntur frá gróðrastöðinni Kjarri, viðurkenningarskjal og glæsilegan vasa frá listakonunni Fanndísi á Brúnastöðum.