Senn líður að árlegri fjölskyldu- og menningarhátíð í Flóahreppi sem haldin verður helgina 30.-31. maí. Hátíðin byrjar á föstudegi þar sem fyrirtæki og fjölskyldur í Flóahreppi bjóða gesti velkomna á opin hús. Á föstudagskvöldi verður svo hin geysivinsæla fjölskyldukvöldganga. Þetta árið göngum við frá Dalbæ í Gaulverjabæjarhreppi og fræðumst um svæðið og njótum náttúrunnar. Eftir gönguna verður göngugörpum boðið í brekkusöng og hressingu á kakóbarnum.
Laugardaginn 31. maí hefjum við hátíðina í Þingborg kl. 12. Þá hefst skemmtileg og fjölbreytt dagskrá í og við Þingborg, þar sem kvenfélögin í Flóahreppi verða með hinn margrómaða kökubasar, vöfflukaffi og fatamarkað. Ungmennafélagið Þjótandi, ásamt Íþrótta-, æskulýðs- og menningarnefnd Flóahrepps, bjóða upp á fjölbreytta barna- og fjölskyldudagskrá þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Vélasýningin verður glæsileg að vanda. Ferguson félagið sýnir eldri vélar og einnig verður sölusýning á nýjum vélum. Flóakorn sýnir kornskurðarvél félagsins. Sölubásar, englasýning, saumavélasýning, lifandi tónlist, smádýr, skemmtiatriði og þjóðdansar. Hin geysivinsæla kökuskreytingarkeppni verður á sínum stað. Einnig verður hjólarallý og margt fleira. Hlökkum til að sjá ykkur og eiga frábæra helgi saman í Flóahreppi.

Hægt er að finna frekari upplýsingar um hátíðina á Facebook Fjör í Flóa, Instagram menningifloa og á heimasíðu Flóahrepps www.floahreppur.is.
Íþrótta-, æskulýðs- og menningarnefnd Flóahrepps,
kvenfélögin og ungmennafélagið Þjótandi.