Fyrsta sumarmót ÍR var haldið 21. maí síðastliðinn. Fjórir keppendur úr frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt og stóðu sig vel. Bryndís Embla Einarsdóttir gerði Íslandsmet í spjótkasti í flokki 16-17 ára. Hún kastaði spjótinu 46,32 m og bætti Íslandsmet Arndísar Diljár Óskarsdóttur frá árinu 2021 um 39 cm. Hún bætti einnig eigið HSK-met í flokknum en fyrra met hennar var 44,75 m.
Selfoss.net greinir frá þessu.
Kristján Kári Ólafsson keppti í þremur kastgreinum og bætti sig í þeim öllum. Hann kastaði karlasleggjunni 35,80 m sem er nýtt HSK-met í flokki 16 -17 ára en fyrra metið átti Benjamín Guðnason með 32,29 m. Kristján Kári fékk silfurverðlaun fyrir kastið en faðir hans, Ólafur Guðmundsson, náði 3. sæti með 30,2 8 m löngu kasti. Kristján Kári keppti í kúluvarpi í flokki 16-17 ára þar sem hann kastaði 13,53 m og varð í öðru sæti, sama sæti og hann fékk fyrir að kasta kringlunni 33,69 m í flokki 16-17 ára. Að lokum kastaði Daníel Breki Elvarsson karlaspjótinu 49,17 m og sigraði í karlaflokki.