Héraðsmót HSK í sundi var haldið í Hveragerði 15. maí sl. Keppendur mættu frá Selfossi og Hamri. Selfyssingar unnu 10 HSK-meistaratitla og Hamarskeppendur unnu tvo.
HSK veitir jafnan þrenn sérverðlaun til einstaklinga á þessu móti, þ.e. fyrir besta afrek mótsins og fyrir stigahæsta karl og konu. Besta afrek mótsins samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu vann Freyr Sturluson Schacht úr Umf. Selfoss fyrir 50 m skriðsund, en hann synti á 0:31,51 mín. sem gaf 292 stig. Freyr var einnig stighæsti karl mótsins, hlaut 21 stig fyrir að vinna þrjár greinar. Stighæsta kona mótsins var Birta Margrét Larsen, Umf. Selfoss, hún hlaut 21 stig fyrir að sigra þrjár greinar.
Selfoss vann stigakeppni félaga með 109 stig og Hamar hlaut 62 stig.
Heildarúrslit mótsins má sjá á www.hsk.is.