Hengill Ultra Trail, stærsta utanvegahlaup landsins, fer fram laugardaginn 7. júní næstkomandi í Hveragerði. Þar koma saman byrjendur, flestir öflugustu utanvegahlauparar landsins auk keppenda frá 27 þjóðlöndum og spreyta sig á vegalengdum frá 26 kílómetrum og upp í 106 kílómetra. Á sama tíma er mikil aðsókn í 5 og 10 kílómetra brautirnar en allar hafa þær sama upphaf og endi í hjarta Hveragerðis. Það verður mikið um dýrðir í Hveragerði þessa helgi því ekki bara hlaupa um 1400 hlauparar um bæinn þennan dag heldur er dagskrá fyrir öll, hvort sem þau hlaupa eða ekki. Það verður sölusýning á varningi tengdum utanvegahlaupum og almennri hreyfingu í íþróttahúsinu og götugrill við endamarkið sem öll eru velkomin í. Bylgjan verður á svæðinu frá hádegi, Skítamórall mætir í götugrillið um miðjan dag og plötusnúðarnir Doctor Victor og dj. Anna Ármann halda uppi stuðinu.

Götugrilli Hengils Ultra er stýrt af Fannari Geir Ólafssyni matreiðslumeistara og hans fólki í Kjötbúrinu sem er Sælkeraverslun á Suðurlandi. Þar verða framreiddir 120 gr. gourmet hamborgarar og drykkir frá Coca Cola á Íslandi. Keppendur fá ávísun í grillið en gestir og gangandi geta einnig keypt sér veitingar og notið dagsins með keppendunum. Reist verður stórt veitingatjald við endamarkið í tengslum við Götugrillið þar sem hægt verður að njóta veitinganna. Kynnir hlaupsins er eins og venjulega, heimakonan Rakel Magnúsdóttir sem kynnt hefur hlaupið síðustu ár af mikilli snilld og alúð. Þá lýkur dagskránni um kvöldið með partýi í íþróttahúsinu þar sem Helgi Björns, Pretty Boj tjokkó og Klara Einars koma fram ásamt Doctor Victor og Dj Önnu Ármann. Það er opið öllum og miðasala er í fullum gangi á hengillultra.is.

Búið er að loka fyrir skráningar í 53k og 106k en enn þá eru nokkur pláss laus í 5k, 10k og 26k og hægt er að skrá sig inn á hengillultra.is
Á síðunni er einnig að finna afsláttarkóða fyrir þau sem vilja tryggja sér gistingu á Hótel Örk eða í Gróðurhúsinu. Þá er einnig frábært tjaldstæði í Hveragerði sem er opið allt árið.