11.7 C
Selfoss

Guðrún Eva með upplestur í Listasafni Árnesinga 

Vinsælast

Listasafn Árnesinga heldur viðburð 22. maí klukkan 19:30 þar sem rithöfundurinn Guðrún Eva Mínervudóttir verður með upplestur.

Guðrún Eva er fædd í Reykjavík árið 1976 en alin upp víðs vegar um landið, meðal annars í Mosfellssveit, á Kirkjubæjarklaustri og í Garði í Gerðahreppi. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1996 en útskrifaðist árið 2007 frá Háskóla Íslands með BA í heimspeki. Guðrún Eva hefur fjórum sinnum verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og fékk þau árið 2011 fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur. Hún hefur þrisvar verið tilnefnd til Menningarverðlauna DV og fengið þau tvisvar; árið 2005 fyrir Yosoy og árið 2014 fyrir Englaryk. Einnig hlaut hún Fjöruverðlaunin í byrjun árs 2019 fyrir smásagnasafnið Ástin Texas. Árið 2021 var hún tilnefnd til Norrænu bókmenntaverðlaunanna fyrir skáldsöguna Aðferðir til að lifa af. Hún hefur einnig hlotið viðurkenningu RÚV fyrir ritstörf og Bókmenntaverðlaun bóksala fyrir skáldsöguna Í skugga trjánna. Meðfram sagnaritun er Guðrún Eva í hlutastarfi sem ritlistarkennari við Listaháskóla Íslands.

Nýjar fréttir