11.7 C
Selfoss

Ingveldur ráðin framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands

Vinsælast

Ingveldur Sæmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands. Hún tekur við starfinu af Ingunni Jónsdóttur og mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun félagsins.

Háskólafélag Suðurlands er leiðandi á Suðurlandi í að miðla háskólanámi í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar í samvinnu við íslenska og erlenda háskóla. Félagið þróar einnig endurmenntun fyrir atvinnulíf á svæðinu og styrkir arðbærar og fjölbreyttar rannsóknir. Enn fremur er Háskólafélagið öflugur vettvangur rannsóknarstofnana og fyrirtækja ásamt því að tengja saman þekkingu í gegnum gróskumikil verkefni.

Ingveldur er með víðtæka reynslu úr opinberri stjórnsýslu, stefnumótun og verkefnastjórnun. Hún starfaði frá 2013-2025 sem aðstoðarmaður ráðherra, annars vegar Sigurðar Inga Jóhannssonar og hins vegar Sigrúnar Magnúsdóttur, fyrst í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, síðan í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, þá innviðaráðuneytinu og nú síðast í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ingveldur er með MBA-gráðu frá HÍ og hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að uppbyggingu innviða, stefnu og framtíðarsýn.

„Það er mér sönn ánægja að vinna með framsýnu og metnaðarfullu fólki að því að efla menntun, hæfni og rannsóknir í þágu samfélagsins á Suðurlandi,“ segir Ingveldur. „Ég trúi á að öflugt þekkingarsamfélag sé grunnur að sterku samfélagi og hlakka til að leggja mitt af mörkum.“

Nýjar fréttir