11.7 C
Selfoss

Guðríður sæmd Heiðurskrossi ÍSÍ og Jón gerður að heiðursfélaga

Vinsælast

Við þingsetningu á 77. íþróttaþingi ÍSÍ 16. maí sl. voru veittar heiðursviðurkenningar til forystufólks úr íþróttahreyfingunni. Guðríður Aadnegard, formaður HSK, var sæmd Heiðurskrossi ÍSÍ og Jón M. Ívarsson var gerður að heiðursfélaga.

Guðríður hefur gegnt formannsembætti HSK frá árinu 2010. Hún var kjörin í varastjórn HSK árið 2000 og varð ritari sambandsins ári síðar. Hún er því búin að vera í leiðtogastarfi hjá HSK í 25 ár. Guðríður var áður formaður Íþróttafélagsins Hamars um árabil.

Guðríður hlaut hvatningarverðlaun dags gegn einelti árið 2021, í starfi sem námsráðgjafi og umsjónarkennari við Grunnskólann í Hveragerði.

Jón á að baki fjölbreytt hlutverk innan íþróttahreyfingarinnar, meðal annars sem iðkandi, stjórnarmaður, dómari og leiðtogi. Hann var meðal annars formaður Glímusambands Íslands á árunum 1995 – 2001 og gegndi embætti ritara hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands. Hann hefur verið ómetanlegur við heimilda- og söguskráningu í íþróttahreyfingunni, skráð sögu fjölmargra eininga og góðfúslega gefið svör og leitað svara við ýmsum spurningum sem upp koma í starfinu og grafast þarf fyrir um í eldri heimildum. Jón var sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ árið 2019.

Jón er fjórði frá vinstri.
Ljósmynd: isi.is.

Nýjar fréttir