Ég undirritaður mótmæli harðlega þeim fyrirhuguðu framkvæmdum í Steinum sem birtust í auglýsingu í Dagskránni um skipulagsmál í Rangárþingi eystra þann 15. apríl sl. Ég vísa í fyrri mótmæli sem afhent voru en láðist að birta á Skipulagsgátt vegna handvammar yfirvalda. Sá rökstuðningur sem þar kemur fram er fullgildur varðandi umrædda auglýsingu.
Það er með öllu óskiljanlegt að sveitarstjórn skuli velja það að ganga í berhögg við álit Eyfellinga í þessu máli. Íbúarnir eru niðurlægðir með því að birta ekki mótmæli þeirra sem sýnir berlega að viðkomandi yfirvöldum er ekki treystandi. Núverandi yfirvöld hafa gengið fram í því að sýna Eyjafjöllum lítilsvirðingu með leyfisveitingum fyrir margs konar framkvæmdum sem sverta ásýnd Eyjafjalla og rýra gæði þeirra. Má þar nefna húsaþyrpingu á Lambafelli, bílastæði við Skógafoss, fyrirhugaðar hótelbyggingar og smáhýsi víðs vegar. Nú á að bíta hausinn af skömminni og taka tvær jarðir úr landbúnaðarnotum í Steinum og vinna að leyfisveitingu fyrir tvö hótel, baðlón, orkustöð, 100 smáhýsum auk starfsmannaíbúða. Allt á miklum veðravítisstað. Rætt er um að hleypa frárennsli í sjóinn. Sem næsti landeigandi þá leggst ég alfarið gegn þvílíkri framkvæmd. Jörðum sem liggja að sjó fylgir einnig réttur í sjó. Sem vörslumaður þess hvað varðar Berjanes, næstliggjandi jörð við Steinana, þá get ég ekki með nokkru móti leyft að frárennsli verði sett í sjóinn. Hætta að frárennsli frá rotþróm lendi í Holtsós og mengi hann er mikil. Bendi ég á að situr frá rotþró við Hótel Uma fer í næstliggjandi skurð sem er grængolandi af illa lyktandi óþverra frá rotþrónni. Má ætla að það sama myndi gerast í Steinum. Eftirliti með þessum hlutum er ábótavant. Neysluvatnsþörf yrði afar mikil í Steinum og ráðgert að bora eftir vatni. Það væri of mikil áhætta fyrir næstliggjandi vatnsból á víðu svæði. Vatnsból Berjaness er á því svæði og því leggst ég alfarið gegn stórfelldri borun og vatnstöku á svæðinu.
Framkvæmdirnar myndu valda ljósmengun og hávaða vegna umferðar, átroðningi á næstliggjandi jarðir og óafturkræfum skemmdum á fuglalífi og gróðri á svæðinu.
Það er umhugsunarefni hvers vegna sveitarstjórnin er samhuga um að rýra gæði Eyjafjalla og ásýnd. Hún tekur ekkert tillit til íbúanna. Að ætla sér að auka svo mjög við fólksfjölda á svæðinu án þess að leiða hugann að því að innviðir hvers konar eru nú þegar að þrotum komnir og mega ekki við auknu álagi, er ekki ásættanlegt. Það er ekki hægt að sætta sig við þau svör frá æðstráðandi að innviðir séu ekki á könnu sveitarstjórnar. Sveitarstjórn má ekki viljandi og vitandi vits rýra það litla sem eftir er af grunnþjónustu íbúanna. Það er lítilsvirðandi. Til þess voru fulltrúarnir ekki kosnir. Geri hún það er hún ekki starfi sínu vaxin. Gangi hún erinda fjármagnsins gegn vilja íbúanna þá er illt í efni.
Að öðru leyti vísa ég í fyrri mótmæli um sama mál.
Berjanesi 27. apríl 2025.
Ath. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 30. maí nk. Auðvelt að setja á Skipulagsgátt hjá Rangárþingi eystra.
Vigfús Andrésson.