17.8 C
Selfoss

Fyrsta skóflustunga að nýrri björgunarmiðstöð tekin á Flúðum

Vinsælast

Fyrsta skóflustunga að nýrri björgunarmiðstöð á Flúðum var tekin í gær. Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri og Einar Ágúst Hjörleifsson formaður björgunarsveitarinnar tóku stunguna.

Miðstöðin mun hýsa aðstöðu Brunavarna Árnessýslu og björgunarfélagsins Eyvindar á Flúðum.

Ljósmynd: Dfs.is/EHJ.

Húsið verður um 1200 fm2 að grunnfleti og þar af Brunavarnir Árnessýslu með um 650 fm2 af grunnfleti. Húsið er límtréshús með steinullareiningum og sér Harri Kjartansson húsasmíðameistari um að reisa húsið. 

Tölvumynd af húsinu.

Gert er ráð fyrir að vinna við jarðvinnu hefjist á næstu dögum og í framhaldi verði smíðavinna við sökkla, plötu og reisingu á húsinu. 

Reiknað er með að húsið verði komið upp og lokað í desember 2025 og að það verið tilbúið á árinu 2026.

„Húsið mun gjörbylta aðstöðu Brunavarna Árnessýslu og björgunarsveitarinnar á Flúðum,“ segir Lárus Kristinn Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu.

Nýjar fréttir