Komið sæl, kæru Sunnlendingar.
Líf og fjör hefur verið í Menntaskólanum að Laugarvatni síðustu daga, þar sem fram fór skemmtileg þemavika sem endaði á skemmtilegu þemaballi. Vegna páska og sumardagsins fyrsta var skóli aðeins í þrjá daga og hófst því þemavikan þriðjudaginn 23. apríl með treyjudegi, og mættu nemendur í sínum uppáhalds íþróttatreyjum. Daginn eftir, miðvikudaginn 24. apríl, var sólgleraugnadagur og þá mátti sjá alla ganga um með sólgleraugu á nefinu eða hausnum. Má segja að sumarleg stemning tæki yfir skólann, þrátt fyrir íslenskt aprílveður. Svo leið að föstudeginum 25. apríl og þá var „Fancy Friday“, þar sem allir mættu í sínu fínasta pússi. Ótrúlega gaman var að sjá bæði nemendur og starfsmenn fylgja þemanu. Um kvöldið var svo haldið árlega þemaballið og þetta árið varð 80’s þema fyrir valinu. Nemendur skólans mættu í neon-litum, með legghlífar, jafnvel á hjólaskautum og með stórar fínar hárgreiðslur. Dansað og sungið var á ballinu og skemmtu sér allir konunglega.

Vikuna eftir var haldin Dimission fyrir þriðja bekk föstudaginn 2. maí. Klædd upp sem Bangsímon fór útskriftarhópur ársins í sinn leiðangur og loks á hitting með starfsfólki menntaskólans. Mikið var um bros og tár, enda mikil tímamót fyrir þennan flotta hóp sem nú heldur út í heiminn eftir dýrmæt ár á Laugarvatni. Það er óhætt að segja að þessar tvær vikur hafa verið einstaklega skemmtilegar og alls ekki amalegt að enda þetta skólaárið á svona skemmtun.

Elena R. Marquez Gunnlaugsdóttir,
ritnefndarformaður nemendafélagsins Mímis.