17.8 C
Selfoss

SSK gefur út gjafakort

Vinsælast

Samband sunnlenskra kvenna gefur árlega út gjafakort. Allur ágóði af kortunum rennur í Sjúkrahússjóð sem SSK heldur utan um. Allt sem safnast í þennan sjóð er gefið í formi tækja til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Árnes- og Rangárvallasýslu, þá helst til heilsugæslnanna, eða á sjúkrahúsið og bráðamóttökuna. Kortin eru til sölu á öllum heilsugæslustöðvunum í Árnes og Rangárvallasýslu, en einnig er hægt að nálgast þau hjá formanni SSK, Sólveigu Þórðardóttur s. 869 6534, email ssk@kvenfelag.is. Einnig hafa margir formenn kvenfélaganna á svæðinu verið með kort til sölu hjá sér. Árið 2024 gaf SSK Heilsugæslunni á Selfossi og Heilsugæslunum í Rangárþingi gjafir fyrir alls 2.488.335 krónur sem er afrakstur sölu á kortunum. Einnig er enn til eitthvað af eldri gjafakortum sem verða til sölu meðan birgðir endast. Ykkar stuðningur er okkar allra hagur.

Nýjar fréttir