17.8 C
Selfoss

Kjötstöng með öllu

Vinsælast

Steinar Baldursson er matgæðingur vikunnar.

Ég ætla að byrja á að þakka vini mínum Daða Má fyrir traustið sem hann sýnir manni. Ég bauð honum upp á smörrebröd og danskar frikadellur í liðinni viku og ækte æplekage með ís í eftirrétt. 

Ég ætla hins vegar að gefa ykkur uppskrift að mínum allra uppáhaldsrétt sem ég hef eldað svo oft þegar mig langar að gera vel við mig og mína. Það er heit SS pulsa með öllu. 

Magnið hér á eftir er miðað við einn og það sem maður þarf er eftirfarandi:

3 stk SS pulsur

3 stk Myllu pulsubrauð

Vals tómatssósa

Sæta sinnepið úr krónunni í brúnu túpunum

Remúlaði (ef það er til, ekki nauðsyn)

Steiktur laukur

Rauðlaukur

Aðferð

Maður byrjar á að fínsaxa rauðlaukinn, og undirbúa öll önnur hráefni á eldússkenkinn. Því næst tekur maður pulsurnar og setur á disk og inní örbylgjuofn. Mjög mikilvægt er að standa nærri og gleyma sér ekki. Það skiptir ekki öllu máli hvað maður stillir á langan tíma því maður verður að hlusta eftir því þegar pulsurnar fara að veina eins og þær séu alveg að fara að springa, þá opnar maður öbbann snarlega og leggur pulsubrauðin þvert ofan á pulsurnar og setur aftur allt saman í gang. Þá eru þetta svona 20-30 sekúndur í viðbót (fer eftir krafti ofnana). Þá ættu brauðin að vera orðin heit og pulsurnar vel sprungnar.

Næst opnar maður öll þrjú pulsubrauðin á disk og rennir Valstómatsósunni neðst. Svo setur maður steiktan lauk og rauðlauk eftir smekk. Eftir það legg ég pulsurnar í brauðin og lauma remúlaðinu meðfram við hliðina á pulsunni. Og þá er bara eftir að kreista sinnepið yfir og voila,þú ert komin með mat fyrir öll tilefni á innan við fimm mínútum. Það fer einstaklega vel að drekka ískalda kókómjólk með eða ískalda mjólk. 

Ég ætla að skora á Sunnlending í afneitun hann Ara Már Gunnarsson vin minn að vera matgæðing næstu viku. Gaman að geta þess að hann á einmitt óskráð Íslandsmet í “pulsu með öllu” áti.

Nýjar fréttir