17.8 C
Selfoss

Hulda Hrönn áfram á Selfossi

Vinsælast

Hulda Hrönn Bragadóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til ársins 2027.

Hulda Hrönn, sem verður 18 ára í sumar, er mjög efnileg vinstri skytta sem leikið hefur með meistaraflokki í þrjú tímabil og tekið miklum framförum á þeim tíma. Hulda Hrönn hefur verið í yngri landsliðum kvenna og hefur verið valin í lokahóp u-19 ára landsliðs kvenna fyrir Evrópumótið sem haldið verður í Svartfjallalandi í sumar.

Handknattleiksdeildin fagnar mjög þessum nýja samningi og við erum spennt að sjá Huldu Hrönn vaxa og dafna áfram í vínrauðu treyjunni næstu árin,“ segir í tilkynningu frá deildinni.

Nýjar fréttir