17.8 C
Selfoss

Tveir Hvergerðingar í U16 landsliði Íslands

Vinsælast

U16 landslið karla í fótbolta lauk keppni í UEFA Development Tournament í dag eftir tap í vítaspyrnukeppni á móti Tékklandi. Liðið spilaði einnig leik við Svíþjóð og Sviss þar sem þeir þurftu að sætta sig við 5-0 tap á móti Svíum en sigruðu Sviss 2-0.

Hvergerðingarnir Brynjar Óðinn Atlason og Markús Andri Daníelsson Martin voru í byrjunarliði Íslands í tveimur leikjum af þremur.

Brynjar Óðinn er fæddur árið 2009. Hann gekk í raðir ÍA á Akranesi í desember 2024 og hafði þar áður, þrátt fyrir ungan aldur, spilað 28 leiki fyrir meistaraflokk Hamars og skorað með þeim 2 mörk.

Markús Andri er fæddur árið 2010 og hefur hann spilað 15 leiki fyrir meistaraflokk Hamars og skorað 1 mark. Hann á þrjá leiki með U15 landsliði Íslands ásamt því að eiga núna þrjá leiki með U16.

Nýjar fréttir