Hjólað í vinnuna 2025 byrjar í dag og er að þessu sinni sett í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna er nú haldið í tuttugasta og þriðja sinn og stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 27. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta.
Að hjóla í vinnuna eykur daglega hreyfingu, hjólreiðar eru hagkvæmar og góðar fyrir pyngjuna og samgöngumátinn er umhverfisvænn. Hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti og jafnframt eru þær frábær útivist, hreyfing og öflug líkamsrækt. Verkefnið Hjólað í vinnuna er góð leið til þess að hressa upp á stemninguna í fyrirtækinu og þjappa hópnum saman.
Í vinnustaðakeppni er fyrst og fremst keppt um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða. Að auki er kílómetrakeppni þar sem keppt er annars vegar á milli liða um heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liði.
Í ár eru þau sem vinna heiman frá sér hvött til þess að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annan virkan ferðamáta sem nemur kílómetrum til og frá vinnu.
Allar upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á www.hjoladivinnuna.is en þar má finna áhugavert efni, reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira.
Nánari upplýsingar um verkefnið veita Linda Laufdal og Þórarinn Alvar Þórarinsson, starfsmenn Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, í síma 514-4000 eða á netfangið hjoladivinnuna@isi.is.
HSK hvetur fyrirtæki og starfsfólk á sambandssvæðinu að taka þátt og gera vinnudaginn bæði virkari og skemmtilegri.