17.8 C
Selfoss

Böðvar og Arnar Helgi keppa á Norðurlandamótinu í Judo

Vinsælast

Norðurlandamótið í Judo verður haldið í Bröndby í Danmörku um helgina 9. – 11. maí.

Góð þátttaka er á mótinu og eru keppendur frá átta löndum.

Að þessu sinni fara tveir keppendur frá Judofélagi Suðurlands, þeir Böðvar Arnarsson, sem keppir í 81kg flokki fullorðinna, og Arnar Helgi Arnarsson, sem mun keppa í 100kg í flokki yngri en 21 árs og 100kg flokki fullorðinna, en þess má geta að Arnar Helgi er aðeins 17 ára. Báðir hafa æft af kappi fyrir Norðurlandamótið og þau verkefni sem eru fram undan.

Nýjar fréttir