Ársreikningur Flóahrepps fyrir árið 2024 var lagður fram til seinni umræðu í sveitarstjórn ásamt sundurliðunarbók og endurskoðunarskýrslu 6. maí sl. Fyrri umræða um ársreikninginn fór fram í sveitarstjórn þann 7. apríl 2025.
Samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins námu rekstrartekjur A og B hluta á árinu 2024 1.333 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 179,3 millj. kr., en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 172,2 millj. kr. og hefur rekstrarniðurstaða aldrei verið eins góð frá stofnun Flóahrepps árið 2006.
Hulda Kristjánsdóttir sveitastjóri Flóahrepps greinir frá þessu á heimasíðu sveitarfélagsins.
„Niðurstöður ársreiknings 2024 sýna mjög góða stöðu sveitarfélagsins og sýna fram á getu sveitarfélagsins til að sinna sínum lögbundnu verkefnum. Veltufé frá rekstri upp á 218,7 millj. kr. endurspeglar það svigrúm sem rekstur sveitarfélagsins gefur til að standa undir nýjum fjárfestingum, framkvæmdum og uppbyggingu innviða í þágu íbúa,“ segir Hulda.