17.8 C
Selfoss

Að bjarga bók – Fyrirlestur í Skálholti

Vinsælast

Laugardaginn 10. maí kl. 15:00 verður boðið upp á fræðslufyrirlestur í Skálholtsskóla sem ber heitið: „Að bjarga bók“

Eyþór Guðmundsson bókasafnari frá Beitingsstöðum hefur undanfarin 7 ár haldið úti verkefninu Old Icelandic books sem hefur það markmið að varðveita þann menningararf sem liggur í íslenskum fornbókmenntum.

Hann á viðamikið bókasafn fágætra bóka, sem inniheldur bækur sem prentaðar voru fyrr á öldum en elsta eintakið er biblía á latínu sem var í eigu Dr. Péturs Péturssonar viskups á árunum 1866 – 1889. Sú biblía var prentuð árið 1578 og er því eldri en Guðbrandsbiblía. Einnig á hann handritabrot sem eru talin vera um 600 ára.

Ljósmynd: Aðsend.

Í bókasafninu eru fágætar biblíur og bækur sem prentaðar voru í prentsmiðjum sem staðsettar voru í Viðey, Hrafnseyri, á Hólum og í Skálholti. Meðal bóka hans eru bækur sem eru einungis til í einu eintaki.

Eyþór mun fjalla um tilurð Old Icelandic books og frá ferlinu við að bjarga gömlum bókum, en hann þvær bækurnar og bindur þær upp að nýju.

Hann mun sýna nokkrar bækur sem voru prentaðar í Skálholti á 17. öld.

Ljósmynd: Aðsend.

Á skalholt.is má lesa um fleiri viðburði í tengslum við menningarveisluna í maí.

Nýjar fréttir