17.8 C
Selfoss

Rósa Traustadóttir með sýningu í Gallery Listaseli

Vinsælast

Rósa Traustadóttir, listakona með meiru, opnaði myndlistarsýningu í Gallery Listaseli laugardaginn 3. maí. Þar sýnir hún vatnslitaverk unnin á síðastliðnu ári. Rósa hefur sýnt hérlendis og erlendis en þetta er sjötta einkasýning hennar. Hún hefur sótt námskeið hjá erlendum og íslenskum vatnslitamálurum og er í Vatnslitafélagi Íslands. Hún bjó á Selfossi í þrjátíu ár en býr nú í Mosfellsbænum en dvelur mikið í Grímsnesinu þar sem þau hjónin eiga bústað. 

Vatnslitirnir hafa átt hug hennar alla tíð og glíman við litina og vatnið sem flæðir á pappírnum. Vegferðin með vatnslitunum verður oft að nokkurs konar hugleiðslu þar sem hún týnir tímanum og flýtur með. Sýningin stendur til 30. maí.

Nýjar fréttir