17.8 C
Selfoss

Nemendasýning Dansakademíunnar haldin hátíðlega í Borgarleikhúsinu

Vinsælast

Síðastliðinn laugardag var nemendasýning Dansakademíunnar haldin í Borgarleikhúsinu. Sýningin bar yfirheitið „Heimsókn til ömmu og afa“ og var stórskemmtileg dans- og leiksýning þar sem um 220 sunnlensk börn stigu á Stóra svið Borgarleikhússins. Þetta var í fyrsta sinn sem leiklistarnemendur skólans fengu burðarhlutverk í sýningunni og túlkuðu söguna um það hvernig amma og afi kynntust, og hvernig lífið var í „gamla daga“. Það voru ekki einungis fjölmargir nemendur sem lögðu leið sína til Reykjavíkur til að koma fram, heldur fylgdu þeim um 900 áhorfendur og hamingja nemenda og aðstandanda leyndi sér ekki.

Þetta var einnig frumraun þeirra dansnemenda sem hafa æft Söngur og dans síðastliðið ár, í að syngja og dansa samtímis á sviðinu. Námsframboð Dansakademíunnar er sífellt að þróast og gátu dansnemendur sótt sér valtíma aukalega við þeirra hefðbundna dansnám síðasta árið og æft allt að 5x í viku í Söngur og dans, Acro, danstækni eða vera í lokaatriði sýningarinnar. Þessi þróun skilaði sér beint á Stóra sviðið þar sem fjölbreytt nám nemendanna var bersýnilegt í stórkostlega fjölbreyttum og skemmtilegum atriðum.

Nýjar fréttir