17.8 C
Selfoss

„Fagra veröld“ í Sólheimakirkju

Vinsælast

Kammerkór Reykjavíkur heldur til Sólheima í Grímsnesi þann 17. maí næstkomandi og verður með tónleika þar kl. 14:00 í Sólheimakirkju. Tónleikarnir bera yfirskriftina Fagra veröld. Stjórnandi tónleikanna er Sigurður Bragason og á píanó spilar Elísabet Þórðardóttir.

Kórinn er á leið í söngferð til Spánar í júní og verður sama prógram flutt á tónleikunum á Sólheimum og á Spáni.

Kórinn hefur starfað í yfir tuttugu ár og er hann skipaður 16 söngvurum og innan kórsins eru fimm einsöngvarar. 

Öflug starfsemi er hjá kórnum og er æft einu sinni í viku. Tekist er á við ýmis verkefni bæði innlend sem erlend, haldnir eru tvennir tónleikar á ári, vortónleikar og svo jólatónleikar.

Nýjar fréttir