17.8 C
Selfoss

„Ef allir væru eins þá myndi maður bara ruglast hver er hver“

Vinsælast

Það var sannarlega ævintýraleg stemning í Íþróttahúsinu í Vallaskóla 1. maí þegar Sinfóníuhljómsveit Suðurlands efndi til fjölskyldutónleika undir yfirskriftinni Burtu með fordóma.

Nemendur frá Tónlistarskóla Árborgar og elstu nemendur í fimm leikskólum Árborgar komu fram á tónleikunum og þegar mest var voru 220 flytjendur á sviðinu auk þeirra Gunnars Helgasonar og Felix Bergssonar sem voru kynnar og hljómsveitarstjórans Guðmundar Óla Gunnarssonar. Leikskólabörnin voru einnig ráðgefandi í baráttunni við fordóma og tilvitnanir í þau prýddu veggi íþróttahússins. „Ef allir væru eins þá myndi maður bara ruglast hver er hver,“ sagði eitt af leikskólabörnunum.

Uppselt var á tónleikana og það var alveg ljóst að tónleikagestir skemmtu sér vel og sungu með af hjartans list í lokalaginu.

Björgvin Rúnar Valentínusarson, ljósmyndari Dfs.is, var á staðnum og fangaði stemninguna.

Nýjar fréttir