17.8 C
Selfoss

Alvöru ´80s partý með Hr. Eydís og Ernu Hrönn

Vinsælast

Háskólabíó var vettvangur algerrar nostalgíusprengju síðastliðið laugardagskvöld þegar Hr. Eydís og Erna Hrönn fóru með troðfullan sal í tryllt ´80s tónlistarferðalag. Fjöldi tónleikagesta var mættur uppáklæddur og það jók aldeilis á stemmninguna. Tónleikarnir voru sannkölluð partýveisla þar sem stærstu smellir áratugarins fengu að hljóma og allt ætlaði um koll að keyra þegar leynigestur kvöldsins steig á svið.

Ljósmynd: Brynja Eldon.

Leynigestur kvöldsins, Bjarni Ara, kom öllum tónleikagestum að óvörum og söng sigurlagið sitt úr Látúnsbarkakeppni Stuðmanna árið 1987, Slá í gegn. Fólk stóð upp úr sætum, dansaði og söng með af fullum krafti og augljóst var að kvöldið var ógleymanlegt fyrir alla viðstadda.

Ljósmynd: Brynja Eldon.

„Þetta var magnað, við vorum bókstaflega komin aftur í tíma….þetta var alveg geðveikt!“ sagði einn glaður tónleikagestur brosandi út að eyrum að tónleikum loknum.

Ljósmynd: Brynja Eldon.

Tónleikarnir í Háskólabíói sýndu glögglega hversu lifandi og áhrifamikil ’80s-tónlistin er enn í dag.

Ljósmynd: Brynja Eldon.

Rás hljómsveitarinnar á Youtube: https://www.youtube.com/@eydisband

Instagram: eydisband

Facebook: Hr. Eydís (hreydisband)

TikTok: eydisband

Nýjar fréttir