Krakkabarokk á Suðurlandi eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokktímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af Suðurlandi.
Tónleikarnir fara fram í Selfosskirkju sunnudaginn 11. maí og hefjast kl. 15.
Á tónleikunum fá áheyrendur að heyra einleik, samleik og kórsöng með undirleik hátíðarhljómsveitar Krakkabarokks.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Fram koma:
Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk
Nemendur Tónlistarskóla Rangæinga
Kór Hvolsskóla
Orgelkrakkar Tónskóla Þjóðkirkjunnar
Tónleikarnir og verkefnið Krakkabarokk er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands og Barnamenningarsjóði.