17.8 C
Selfoss

Hamar HSK meistari í badminton

Vinsælast

Meistaramót HSK í badminton fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn sunnudaginn 4. maí sl. og mættu samtals um 40 keppendur til leiks frá Íþróttafélaginu Hamri, Íþróttafélaginu Dímon og frá Ungmennafélagi Laugdæla. Keppt var í samtals 10 aldursflokkum og var mikil og góð stemning á mótinu. Allir keppendur undir 11 ára fengu þátttökuverðlaun, en keppt var til verðlauna í öðrum aldursflokkum. Fór svo að Íþróttafélagið Hamar stóð uppi sem sigurvegari í stigakeppni mótsins, Íþróttafélagið Dímon í öðru sæti og Ungmennafélag Laugdæla í því þriðja. Í lok mótsins fékk Íþróttafélagið Hamar því afhentan nýjan farandbikar meistaramóts HSK sem Orkan í Hveragerði er gefandi að.

U13 Tátur    
1 Íris Þórhallsdóttir Hamar
2 Thelma Rún Pálsdóttir Hamar
     
U13 Hnokkar    
1 Róbert Tinni Örvarsson Hamar
2 Óliver Nói Búason Hamar
     
U15 Meyjar    
1 Rebekka Einarsdóttir Hamar
2 Hulda María Hilmisdóttir Hamar
     
U15 Sveinar    
1 Vilhjálmur Haukur Leifs Roe Hamar
2 Sigurður Elí Vignisson Hamar
     
U17 Telpur    
1 Rakel Rós Guðmundsdóttir Hamar
2 Kolbrún Inga Friðriksdóttir Hamar
     
17 Drengir    
1 Úlfur Þórhallsson Hamar
2 Alexander Ívar Helgason Dímon
     
20-40 Karlar    
1 Friðrik Sigurbjörnsson Hamar
2 Jökull Jóhannsson Hamar
     
40+ Karlar    
1 Sigurður Gústafsson Hamar
2 Jónas Guðnason Hamar

 

Nýjar fréttir