17.8 C
Selfoss

Arnór vann besta afrekið á Aldursflokkamóti HSK í sundi

Vinsælast

Aldursflokkamót HSK í sundi var haldið í sundlauginni á Hvolsvelli 29. apríl sl. Á mótinu var keppt í fjórum aldursflokkum barna og unglinga 17 ára og yngri. Í yngsta flokknum, 10 ára og yngri, var ekki keppt til verðlauna og þar fengu allir jafna viðurkenningu. Í flokkum 11 ára og eldri var keppt um gull, silfur og brons.

Besta afrek mótsins samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu vann Arnór Karlsson. Hann synti 100 metra skriðsund á 1:05,49 mín. sem gaf 323 stig.

Arnór Karlsson.
Ljósmynd: Aðsend.

Selfoss vann stigakeppni félaga örugglega með 170 stig. Dímon varð í öðru sæti með 52 stig eftir hörkukeppni við Hamar, en þeir enduðu með 40 stig.

Nýjar fréttir