17.8 C
Selfoss

Anna Guðrún Evrópumeistari í ólympískum lyftingum

Vinsælast

Evrópumót í ólympískum lyftingum var haldið í Durrës í Albaníu sl. helgi. Rúmlega 900 þátttakendur frá 34 löndum voru skráðir til þátttöku. Anna Guðrún Halldórsdóttir frá Hveragerði var ríkjandi Evrópumeistari fyrir mótið og átti þrjú Íslands-, Evrópu- og heimsmet í ólympískum lyftingum í flokki 55-59 ára kvenna. Hún var með góða endurkomu í ár og kom heim með þrjú ný Íslands-, Evrópu- og heimsmet.

Anna Guðrún tók sex lyftur á mótinu og voru þær allar gildar.

Í snörun (snatch) opnaði hún með 57 kg, tók svo 60 kg og að lokum 62 kg sem
var jafnframt eins kílóa bæting á hennar eldra meti (61 kg).

Í jafnhöttun (clean & jerk) lyfti hún 77 kg, næst 79 sem var jöfnun á heimsmeti og endaði að lokum með 80 kg á lofti, lyfta gild!

Anna Guðrún endaði því með þrjú Íslands-, Evrópu- og heimsmet, 62 kg í snörun, 80 kg í jafnhöttun og 142 í samanlögðu en eldra met var 140 kg.

Ljósmynd: Gunnar Biering.

Eftir að Anna Guðrún tók þátt í Miðjarðarhafsmóti í Durres í Albaníu í apríl 2024 ákvað hún að hún myndi mæta aftur þangað að ári til að taka þátt í Evrópumótinu sem Albanirnir höfðu fengið samþykkt að halda árið 2025. Evrópumótið 2024 í Noregi gekk vel, sem og heimsmeistaramót í Finnlandi en á báðum þessum mótum tók hún gull í sínum flokkum og setti Evrópu- og heimsmet, sem jafnframt voru Íslandsmet.

„Undirbúningur hófst í raun fljótlega eftir síðasta heimsmeistaramót undir styrkri stjórn Maríu Rúnar, þjálfara hennar. Hefur allur undirbúningur miðað að því að undirbúa hana fyrir bætingu á þessu móti, sem gekk vonum framar. Hún var vel stemmd í aðdraganda mótsins, passaði mataræði vel og toppaði á réttum tíma. Stress gerði vart við sig við og við síðustu dagana en hún er snillingur í að nýta stressið sér í hag,“ segir Gunnar Biering, fjölmiðlafulltrúi Önnu Guðrúnar.

„Hér, eins og á síðustu þremur erlendu mótum, hefur hún eignast marga vini, fullt af kunningjum en líklega þótti henni vænst um þegar 45 ára hollensk kona óskaði eftir að fá að æfa með henni, rétt fyrir keppnisdag Önnu Guðrúnar. Sú hollenska taldi sig vera hrausta, var klárlega hávaxin og mössuð. Anna Guðrún mátti ráða þyngdum, hin taldi sig geta hitað upp með sömu þyngdum og Anna Guðrún. Þegar leið á og Anna Guðrún fór að nálgast sitt besta varð sú hollenska að játa sig sigraða, hún gat ekki meir, og sagði: Eftir 10 ár ætla ég að verða eins sterk og þú ert!“ bætir Gunnar við og segir að Anna Guðrún sé ofsalega þakklát öllum sem hafa stutt hana.

Næst á dagskrá er heimsmeistaramót sem fram fer í Las Vegas í byrjun september nk. Markmið hennar er að setja þar þrjú met til viðbótar, að minnsta kosti.

Nýjar fréttir