17.8 C
Selfoss

Vel heppnuð 1. maí hátíðarhöld á Selfossi – Konur í forgrunni á kvennaári

Vinsælast

Árleg 1. maí hátíðarhöld verkalýðshreyfingarinnar fóru fram á Selfossi 1. maí við góðar undirtektir. Dagskráin hófst með kröfugöngu frá Austurvegi 56 kl. 11:00, þar sem Lúðrasveit Selfoss og Hestamannafélagið Sleipnir leiddu hópinn að Hótel Selfoss þar sem hin formlega dagskrá og fjölskylduskemmtun var haldin.

Ljósmynd: Laufey Ósk Magnúsdóttir.

Helga Kolbeinsdóttir frá stéttarfélaginu FOSS stýrði dagskránni með miklum myndarbrag.. Aðalræðu dagsins flutti Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Hún flutti kröftuga ræðu og fór yfir hvernig stéttarfélagabaráttan um heim allan á undir högg að sækja sem og kvennabaráttan. María Friðmey Jónsdóttir flutti áhrifaríkt ávarp fyrir hönd nemenda við FSU. Báðar lögðu þær áherslu á mikilvægi kvenna í verkalýðsbaráttunni og þá vegferð sem enn er fram undan í jafnréttismálum.

Halla Gunnarsdóttir formaður VR.
Ljósmynd: Aðsend.

Hátíðin bar þess merki að 2025 hefur verið útnefnt kvennaár í verkalýðshreyfingunni. Markmiðið með kvennaárinu er að draga fram framlag kvenna til verkalýðshreyfingarinnar í fortíð og samtíð, styrkja stöðu kvenna innan hreyfingarinnar og vekja athygli á þeim sértæku áskorunum sem konur mæta á vinnumarkaði. Sérstök áhersla er lögð á að konur gegni lykilhlutverkum í allri dagskrá ársins og það speglaðist vel í dagskrá dagsins.

Ljósmynd: Laufey Ósk Magnúsdóttir.

Tónlistaratriði voru í höndum Júlí Heiðars og Dísu og Leikfélag Hveragerðis vakti mikla kátínu með skemmtilegum lögum úr Ávaxtakörfunni. Fimleikadeildin sá um andlitsmálun fyrir börnin og boðið var upp á kaffi og veitingar.

Mæting var góð, mikil ánægja ríkti meðal gesta og hátíðin þótti afar vel heppnuð í alla staði. Með þátttöku sinni sýndu þeir sem tóku þátt glæsilega samstöðu og samhug í þágu réttinda launafólks – og að þessu sinni með sérstaka áherslu á jafnrétti kynjanna og virka þátttöku kvenna.

Nýjar fréttir