Sindratorfæran fer fram næsta laugardag, 3. maí, frá kl. 10 til 16.
29 keppendur eru skráðir til leiks í 2 flokkum. Meðal keppenda eru nokkrir sem eru að keppa í sinni fyrstu keppni, aðrir sem hafa verið með í áraraðir og enn aðrir sem eru að koma til baka eftir mislöng hlé. Á meðal keppenda er Íslandmeistarinn Ingvar Jóhannesson auk fimm annarra Íslandsmeistara. Að öðrum ólöstuðum má nefna Gísla Gunnar Jónsson, Snorra Þór Árnason og Þór Þormar Pálsson.
Aðeins sex sinnum í sögu Hellutorfærunnar hafa keppendur verið 29 og yfir og má segja að rúmlega helmingur þeirra séu sigurstranglegir og allflestir hafa staðið á verðlaunapalli. Spennan er mikil eins og sést hefur undanfarna daga hjá keppendum.
Það eru Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Heklu sem standa að keppninni sem hefur verið haldin nær óslitið síðan 1973. Keppnissvæðið er í Tröllkonugili rétt austan Hellu en þar er kjöraðstaða fyrir áhorfendur að tilla sér í brekkurnar og fylgjast með þessum 1000 hestafla græjum reyna fyrir sér í sandbrekkum, börðum, fleytingum á ánni og í mýrinni.
Torfæra er skemmtun fyrir alla fjölskylduna en síðustu ár hafa um 5000 þúsund manns verið á svæðinu og allir haft gaman að því að skoða græjurnar og sjá þær svo takast á við brautirnar. Bein útsending verður frá keppninni á Youtube og RÚV 2 fyrir þau sem ekki komast á staðinn. Auðvelt er að finna keppnina á Youtube með því að leita eftir Sindratorfæran live.
Allar upplýsingar má finna á facebook eventinum (3) Sindratorfæran á Hellu 2025 | Facebook.