17.8 C
Selfoss

Stórhættuleg stökk og skemmtilegur húmor á afmælissýningu BMX BRÓS

Vinsælast

Árið 2015 hófst vegferð hjólasnillingana í BMX BRÓS eftir að hafa lent í 2.sæti í hæfileikaþættinum Ísland Got Talent. Laugardaginn 10. maí næstkomandi verða þeir með 10 ára afmælisgleði í Mýrinni í Garðabæ. Meðlimir BMX BRÓS eru Selfyssingurinn Magnús Bjarki Þórlindsson, Benedikt Benediktsson og Anton „Krulli“ Arnarson.

Skortur á nýjungum í þáttinn

Aðspurður að því hvenær strákarnir byrjuðu að æfa sig á BMX-hjólum segir Magnús Bjarki að mynstrið hafi verið mjög svipað hjá þeim öllum. „Við vorum allir mikið að fjallahjóla á undan sem krakkar. Um 13 ára aldurinn færðum við okkur svo yfir í BMX-hjólin og höfum ekki stigið af þeim síðan í rúm 17 ár,“ segir hann í samtali við Dagskrána.

Það er góð saga á bakvið það hvernig BMX BRÓS fóru í Ísland Got Talent árið 2015. Stöð 2 hafði snemma árs árið 2014 samband við Sindra, góðan félaga BMX BRÓS, vegna skorts á nýjungum í þáttinn.

Sindri er líklega með hæfileikaríkustu jaðarsportmönnum landsins og hafði BMX-hjólað sem Íþróttaálfurinn í Latabæ fyrir Magnús Scheving, hann hafði þó ekki áhuga á því að taka þátt í raunveruleikakeppni og benti á Anton (Krulla). 
Anton var hins vegar á leiðinni til Ameríku í nokkra mánuði og benti því á Benna sem var laus í þessar pælingar og hringdi í Magga til að ræða þetta. Í fyrstu töldum við okkur hreinlega of svala til þess að taka þátt í þessari keppni en þegar Stöð 2 hringdi aftur til að sannfæra okkur þá ákváðum við að slá til og skrá okkur. The rest is history eins og sagt er,“ segir Magnús.

BMX BRÓS kunna ýmsar kúnstir.
Ljósmynd: Aðsend.

Hafa haldið yfir 500 sýningar

Fljótlega eftir að þættinum lauk fóru fyrirtæki að hafa og hátíðarhaldarar að hringja í BMX BRÓS og biðja um atriði á fjölskylduskemmtanir. Maggi og Benni áttuðu sig þá á því að markaðurinn fyrir hjólasýningar væri að opnast og þurfti að skipuleggja sumarið fram í tímann. „Fljótlega kom þó í ljós að á einstaka giggum væri annar okkar upptekinn. Við reyndum á einstaklingssýningar en að stökkva um, peppa áhorfendur og tala í míkrafón á sama tíma er eðlisfræðilega ekki hægt og kom fljótt í ljós að þriðji meðlimurinn yrði að bætast við. Þarna var Anton kominn heim frá Ameríku og buðum við honum að bætast við í BMX-BRÓS hópinn og var hann svo sannarlega til í það,“ tekur Magnús fram.

Meðlimir BMX BRÓS eru Benedikt Benediktsson, Anton Arnarson og Magnús Bjarki Þórlindsson.
Ljósmynd: Aðsend.

Síðan að Ísland got talent lauk hefur verið nóg að gera hjá BMX BRÓS. „Við leggjum gríðarlegan metnað í það að halda skemmtilegar sýningar og tryggja að hátíðarhaldarar og áhorfendur séu ánægðir með okkar vöru. Það hefur skilað sér í því að frá árinu 2015 höfum við haldið yfir 500 sýningar og eru margar þeirra fastur liður á útihátíðum um land allt,“ segir Magnús.

Að sögn Magnúsar hefur gengið vel að tvinna saman BMX BRÓS og vinnu. „Stór hluti sýninganna er um helgar en það kemur reglulega fyrir að við þurfum að hoppa frá eða fá frí á virkum dögum. Við skipuleggjum þá vinnuna okkar í kringum þá daga og erum heppnir með vinnuveitendur sem hafa skilning og gaman af rekstri BMX-BRÓS.

Hefur brotið um tíu bein

Magnús segir að í grunninn sé frelsið við íþróttina það skemmtilegasta við hana.

Við grípum bara í hjólin og getum leikið og æft okkur á næstum hverju sem er, stokkið niður tröppur, hoppað yfir handrið, kíkt á hjólabrettavelli o.fl. Við förum einnig reglulega í „Game of bike“ sem virkar hreinlega eins og „Asni“ í fótbolta. Þá gerir einn okkar ákveðna kúnst á hjólinu og ef við klúðrum að leika það eftir fáum við staf. Þarna náum við framförum í tæknilega erfiðum hlutum og getum einnig ögrað hvor öðrum á skemmtilegan hátt.

Aðspurður að því hvort þeir hafi aldrei slasast á hjólunum segir Magnús ýmis bein hafa verið brotin í gegnum árin.

„Ég var einstaklega óheppinn fyrstu árin og hef brotið um tíu bein, þá t.d lærbein, viðbein, handlegg, rist o.fl. Anton hefur einnig brotið viðbein og rifið liðþófa í hné sem hann var nýbúinn að jafna sig á. Fyrir nokkrum árum braut Benni svo olnbogann á sér og er það eina brotið hans á ferlinum. Almennt er ekki mikið um að rífa eða slíta vöðva í þessu jaðarsporti eins og maður sér oftar hjá boltaíþróttamönnum.

Þau eru mörg áhættuatriðin á sýningum BMX BRÓS.
Ljósmynd: Aðsend.

Öllu tjaldað til í afmælinu

10 ára afmælið verður frábær skemmtun frá byrjun til enda að sögn Magnúsar.

Við ætlum að tjalda öllu til með okkar frábæru styrktaraðilum og halda frábæra powersýningu, Emmsjé Gauti stígur á svið og tekur vel valin lög, áhorfendur fá árituð plaköt með sér heim, gjafaleikur með veglegum vinningum og við erum búnir að vera að undirbúa trikk sem hefur ekki verið tekið áður á Íslandi og við hlökkum mikið til að deila þeirri stund með áhorfendum.

Á sýningunni má búast við BMX-BRÓS í fullum gír að gera það sem þeir gera best. Stórhættuleg stökk, skemmtilegur húmor og mikil tengsl við áhorfendur sem fá að taka þátt í sýningunni með beinum og óbeinum hætti. 10 ára afmæli BMX BRÓS er stund sem þið ættuð ekki að missa af!“ segir Magnús að lokum.

Nýjar fréttir