Daði Már Sigurðsson er matgæðingur vikunnar.
Ég vil byrja á því að þakka handboltagoðsögninni Þóri Ólafs fyrir áskorunina, en til gamans má geta þá er hann allra frægasti vinur minn.
Ég ætla að deila með ykkur uppskrift að enskri smalaböku sem kom á óvart í síðasta matarboði. Þessi uppskrift miðast við 3-5 fullorðna.
500 g nautahakk
Ólífuolía
3 gulrætur
1 meðalstór laukur
3 hvítlauksgeirar
4 tsk tómatpúrra
1 1/2 dl rauðvín
2 dl kjúklingasoð (soðið vatn + kjúklingateningur dugar líka)
Væn skvetta af Worchestershire-sósu
2 tsk rósmarín
Salt og nýmalaður pipar
Hitið olíuna á pönnu, steikið hakkið og kryddið. Rífið niður gulræturnar, laukinn og hvítlaukinn með rifjárni og blandið saman við hakkið. Blandið svo rauðvíni, kjúklingasoði, Worchestershire-sósu og tómatpúrru við og látið malla í nokkrar mínútur.
Kartöflumús með parmesan
750 g kartöflur
2 eggjarauður
Salt og pipar
60 g rifinn parmesan ostur
2 msk smjör
Smá skvetta af mjólk eftir smekk
Sjóðið kartöflur og skrælið. Setjið allt saman í hrærivél og hrærið vel saman í 2-3 mínútur. Stundum er gott að stappa kartöflurnar lítillega áður svo þær festist minna í vélinni. Þá ætti músin að vera klár.
Setjið hakkblönduna í eldfast mót, smyrjið kartöflumúsinni svo ofan á og setjið vel af rifnum parmesanosti yfir. Rétturinn fer svo inn í 180°C heitan ofn í um 20-25 mínútur. Berið fram með fersku salati og njótið með rauðvínsglasi eða stórum bjór.
Ég ætla að skora á undrið úr Klængsselinu, hann Steinar Baldursson, að birta næstu uppskrift, en hann er ávallt þekktur sem sami gamli þorparinn í eldhúsinu. Hann á einmitt rætur að rekja til Danmerkur og ég er á leið í matarboð til hans í næstu viku með dönsku þema þannig að ég býst fastlega við því að hann geti deilt með okkur Sunnlendingum einhverjum leyniuppskriftum úr Danaveldi.