17.8 C
Selfoss

Egill Blöndal Íslandsmeistari í níunda sinn

Vinsælast

Selfoss lét vel að sér kveða á Íslandsmóti seniora í júdó sem haldið var í Laugardalshöll laugardaginn 27. apríl sl. Alls tóku 43 keppendur þátt frá sex félögum, þar af sex glímukappar frá Judódeild Ungmennafélags Selfoss. Selfyssingar stóðu sig með prýði og komu heim með þrjú gullverðlaun og eitt brons.

Egill Blöndal vakti sérstaka athygli með því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í +100 kg flokki. Þetta var níundi titill hans á Íslandsmeistaramóti og sá fjórði í ólíkum þyngdarflokkum – sem gerir afrek hans einstaklega athyglisvert. Egill hefur áður sigrað í -90 kg, -100 kg og opna flokknum, og er nú orðinn einn sigursælasti judomaður landsins.

Heiðrún Fjóla Pálsdóttir gerði glæsilega endurkomu eftir hlé frá keppni og vann til gullverðlauna í +78 kg flokki. Þá átti Gylfi Edduson sterka endurkomu eftir veikindi og langt keppnishlé – hann glímdi af öryggi í -73 kg flokki og varð Íslandsmeistari.

Sigurður Hjaltason landaði bronsverðlaunum í +100 kg flokki eftir sterkar viðureignir. Grímur Ívarsson, sem eitt sinn var meðal öflugustu keppenda Selfoss, sneri aftur til leiks í -100 kg flokki og endaði í fjórða sæti eftir hörkukeppni. Þá stóð Styrmir Hjaltason sig vel þrátt fyrir erfiðan dag – hann hefur sýnt miklar framfarir að undanförnu og lofar góðu fyrir framtíðina.

„Frammistaða Judódeildar UMF Selfoss undirstrikar þann kraft og uppbyggingu sem á sér stað í bæjarfélaginu. Selfoss heldur áfram að vera í fremstu röð í íslensku júdó,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Nýjar fréttir