17.8 C
Selfoss

25 ár frá Suðurlandsskjálftunum – Rangárþing ytra safnar „skjálftasögum“

Vinsælast

Rangárþing ytra hvetur fólk sem upplifði Suðurlandsskjálftana árið 2000 að deila reynslu sinni í tilefni þess að 25 ár verða síðan þeir riðu yfir þann 17. júní næstkomandi. Sveitarfélagið stendur að verkefninu „Skjálftasögur“ með það að markmiði að safna saman persónulegum sögum af þessum stóra atburði sem hafði mikil áhrif á samfélagið og olli miklu tjóni.

Suðurlandsskjálftarnir tveir árið 2000

Fyrir aldarfjórðungi, árið 2000, riðu yfir Suðurland öflugir jarðskjálftar sem skildu eftir sig djúp spor í minni þeirra sem upplifðu þá. Sá fyrsti, af stærðinni 6,6 á Richter-mælikvarða, dundi yfir þann 17. júní klukkan 15:40 að staðartíma. Upptök hans voru austarlega í Holtum; 9 km suður af Árnesi. Tveimur mínútum síðar reið yfir annar skjálfti sem var 5,7 að stærð.

Seinni stóri skjálftinn varð rúmum þremur sólarhringum síðar, aðfaranótt 21. júní klukkan 00:52, suðvestan við Hestfjall. Seinni skjálftinn mældist einnig 6,6 á Richter og bætti við það tjón sem þegar hafði orðið.

Þótt eignatjón hafi verið umtalsvert, þar sem sprungur opnuðust í jörðu og skemmdir urðu á húsum og innviðum, var mikil mildi að ekkert manntjón varð í skjálftunum. Talið er að hátíðarhöld utandyra og í rúmgóðum salakynnum þann 17. júní hafi mögulega haft þar áhrif að ekki fór verr.

Mikilvægt að skrásetja „skjálftasögur“

Þrátt fyrir að aldarfjórðungur sé liðinn eru atburðirnir enn ljóslifandi í minni margra. Hver og einn sem upplifði skjálftana hefur sína eigin sögu að segja, en flestar þessara sagna hafa aðeins lifað í munnlegri geymd. Rangárþing ytra vill nú tryggja að þessar mikilvægu frásagnir verði skrásettar.

Íbúar á öllum aldri eru hvattir til að senda inn sögur sínar og jafnvel myndir sem tengjast atburðunum. Það er einfalt að deila sögum í gegnum sérstakt eyðublað sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins, ry.is. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir um verkefnið á netfangið osp@ry.is, til markaðs- og kynningarfulltrúa Rangárþings ytra.

„Þetta er mikilvægt verkefni fyrir okkur í Rangárvallasýslu og í raun öll sem búa á skjálftasvæði. Suðurlandsskjálftarnir árið 2000 voru stór atburður sem snerti marga í samfélaginu okkar. Með því að safna saman þessum persónulegu sögum viljum við tryggja að minningarnar lifi áfram og að rödd þeirra sem upplifðu þetta fái að heyrast. Við hvetjum alla til að deila reynslu sinni með okkur, hvort sem það er stutt saga eða löng, undir nafni eða nafnlaust. Hver einasta frásögn er mikils virði.“ Segir Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra sem heldur utan um verkefnið.

Sögurnar munu birtast á vefsíðunni sudurlif.is, þar sem sérstakt svæði hefur verið tileinkað verkefninu. Þátttakendur geta valið hvort þeir sendi inn sögur sínar undir nafni eða nafnlaust. Þeir sem kjósa að vera nafnlausir sleppa því einfaldlega að fylla út reitina fyrir nafn, netfang og búsetu á tíma skjálftanna.

Nýjar fréttir