17.8 C
Selfoss

Slökkvistöð rís á Borg í Grímsnesi

Vinsælast

Á vorfundi Brunavarna Árnessýslu bs. í gær var samþykkt að undirbúa rekstur slökkvistöðvar á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Grímsnes- og Grafningshreppur greinir frá þessu á heimasíðu sinni.

„Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps fagnar niðurstöðum vorfundarins og hlakkar til að efla starfsemi Brunavarna Árnessýslu í sveitarfélaginu,“ segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Í Grímsnes- og Grafningshrepp er stærsta frístundahúsabyggð landsins, en þar eru 22% allra frístundahúsa á landinu og það eru því ríkir almannahagsmunir að viðbragðstími hjá viðbragðsaðilum sé með besta móti sem hægt er, bæði fyrir íbúa og fasteignaeigendur.

Sveitarfélagið stefnir á að byggja u.þ.b. 200 m2 hús til leigu fyrir starfsemi Brunavarna Árnessýslu og stefnt er að því að taka húsnæðið í notkun á árinu 2026. Slökkvistöðin verður í Þinggerði 1, sem er lóð í eigu sveitarfélagsins og staðsett við Grímstorg og við Sólheimaveginn.

Áætlað er að gerður verði sérstakur samningur um afnot af húsnæðinu með möguleika á kaupum í framtíðinni.

Nýjar fréttir