Alla laugardaga í maí verður boðið upp á fræðslugöngur og – erindi þar sem saga, menningararfur og náttúra Skálholtsstaðar verða skoðuð frá ýmsum hliðum. Sérfræðingar skoða hinar ýmsu hliðar Skálholts; biskupsfrúr, fornminjar, bækur, prentverk og fuglalíf.
Riðið er á vaðið með fuglagöngu með Tómasi Grétari Gunnarssyni fuglafræðingi laugardaginn 3. maí kl. 9:00. Mæting við Skálholtsbúðir.

Farið verður í göngu um Skálholtstungu, tungu milli Hvítár og Brúarár þar sem árnar mætast. Svæðið býr yfir einni stærstu óröskuðu mýri á Suðurlandi og ríkulegu fuglalífi. Tómas fræðir um líffræðilega fjölbreytni svæðisins, mikilvægi þess fyrir fuglalíf og menningarminjar í landslaginu. Gangan er um 6 km og tekur um 2-3 klst. Klæðist eftir veðri og gott að koma með nesti.

Önnur fræðsluerindi laugardaga í maí hefjast kl. 15:00 og eru í Skálholtsskóla.
Aðgangur er ókeypis og öllum opin en menningarveislan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Veitingastaðurinn Hvönn verður opinn og býður m.a. upp á súpu dagsins og brauð á tilboði.

Dagskrá Menningarveislu í Skálholti:
3. maí kl. 9:00. Fuglar í landi Skálholts. Tómas Grétar Gunnarsson fuglafræðingur leiðir gesti í göngu um Skálholtstungu. Mæting við Skálholtsbúðir.
10. maí kl. 15:00. Að bjarga bók – Eyþór Guðmundsson bókasafnari og stofnandi Old Icelandic books fræðir gesti um ferlið við að bjarga bókum og varðveita þær. Hann sýnir nokkur eintök gamalla bóka, þ.á.m. bækur sem prentaðar voru í Skálholti á 17. öld.
17. maí kl. 15:00. Skörungurinn í Skálholti – Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú. Í þessu fræðsluerindi segir Halldóra Kristinsdóttir frá lífi og störfum Valgerðar, persónulegum og félagslegum áskorunum hennar og þeim fjölbreyttu hlutverkum sem hún gegndi í gegnum ævina. Að fyrirlestri loknum verður stutt leiðsögn frá kirkjunni niður á safn og fornleifasvæði.
24. maí 15:00. Archaeology in Skálholt – fyrirlesturinn er á ensku. Gavin Lucas is one of those who worked on the excavations at Skálholt between 2002 and 2007. He teaches visitors about the excavations and the artifacts that were found there.
31. maí kl. 15:00. Eggjakökupönnur, saffran og ruslakeppir. Marghliða íslensk matarsaga. Nanna Rögnvaldardóttir leiðir gesti í sannleikann á bakvið matarmenningu fyrri alda. Okkur hættir oft til að telja matarsögu Íslands fremur einhæfa og matinn fábreyttan allt fram á síðustu öld. Var þetta eintómur súrmatur og skyr, harðfiskur og hangikjöt? Nei, það var öðru nær!