17.8 C
Selfoss

Guðmundur nýr skólastjóri Þjórsárskóla

Vinsælast

Á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps 25. apríl sl. var samþykkt að ráða Guðmund Finnbogason í starf skólastjóra Þjórsárskóla.

Alls sóttu sex einstaklingar um starfið en þrír drógu umsóknir sínar til baka.

Skeiða- og Gnúpverjahreppur greinir frá þessu á heimasíðu sinni.

Auglýst var eftir metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga með áhuga á uppbyggingu skólastarfs til framtíðar sem jafnframt er með réttindi til kennslu og reynslu af stjórnun.

Bolette H. Koch lætur af störfum sem skólastjóri eftir að hafa gegnt starfinu síðan 2011. Guðmundur kemur inn í hennar stað.

Guðmundur er með B.Ed-próf í grunnskólakennarafræðum, viðbótardiplómu í menntastjórnun og matsfræði og er að ljúka MBA-námi frá UHI í Skotlandi. Hann starfaði sem aðstoðarskólastjóri í Bláskógaskóla á Laugarvatni árin 2017-2022 og var framkvæmdastjóri Útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni 2014-2017. Síðustu þrjú ár hefur Guðmundur starfað sem verkefnastjóri hjá Landsvirkjun.

Hann mun hefja störf í ágúst næstkomandi.

Nýjar fréttir