Á föstudaginn langa gekk Henrik Knudsen, íbúi á Eyrarbakka, frá heimili sínu á Selfoss með stóran kross til að vekja athygli á trú sinni á Jesú.
Gangan hófst klukkan átta um morgunin og gekk allt vel að sögn Halldóru Guðjónsdóttur, eiginkonu Henriks. Gengið var 12 kílómetra frá Eyrabakka á Selfoss þar sem endað var í Hvítasunnukirkjunni. Þar var boðið upp á kjöt í karrý á gamla mátann. „Við báðum saman og minntumst frelsara okkar Jesú sem fór á krossinn fyrir okkur öll fyrir um 2000 árum, “ segir Halldóra. Henrik gekk leiðina ekki einn en fjöldi fólks fylgdi honum og fengu sumir að spreyta sig á krossinum.
„Veðrið var mjög gott og enduðum við í fallega miðbænum á Selfossi og sungum nokkur lög og báðum fyrir þeim sem vildu. Sumir fengu sér ís og krakkar forvitnuðust um krossinn,“ segir Halldóra að lokum.


Ljósmynd: Aðsend.
