17.8 C
Selfoss

Ída Bjarklind snýr aftur heim

Vinsælast

Ída Bjarklind Magnúsdóttir hefur samið við Handknattleiksdeild Umf. Selfoss til þriggja ára.

Ída Bjarklind er hávaxin skytta sem leikið getur bæði hægra og vinstra megin í sókninni, þá er hún öflug í vörninni. Ída er uppalin á Selfossi og þar hóf hún sinn meistaraflokksferil. Eftir það lék hún með Stjörnunni og síðustu ár með Víkingum. Ída lék í gegnum öll yngri landslið og síðustu ár hefur hún verið á meðal markahæstu leikmanna Grill 66 deildarinnar.

Við fögnum því að fá Ídu aftur heim og erum spennt að fá að sjá hana taka næstu skref í Olísdeildinni á Selfossi,“ segir í tilkynningu frá deildinni.

Nýjar fréttir