Jæja, góðan daginn, gjörðu svo vel, viltu afrit, settu vöruna á pokasvæðið, ekki núna, takk fyrir. Hvaða orð og frasa er gott að kunna og skilja, vilji fólk sem er að læra íslensku spreyta sig á að nota í íslensku samfélagi?
Fimmtudaginn 8. maí verður frasamessa á bóksafninu á Selfossi. Messan er liður í átakinu Gefum íslensku séns sem hófst í Árborg fyrir rétt tæpum mánuði. Markmiðið með frasamessunni er að varpa ljósi á algengar setningar sem gagnast vel í samskiptum fólks og að auki bjóða upp á skemmtilega samveru þar sem fólk sem á ekki íslensku að móðurmáli hittist og æfir sig í að nota hina ýmsu frasa. Það eru Háskólafélag Suðurlands, Fræðslunet Suðurlands og Menningar- og upplýsingadeild Árborgar sem standa að átakinu og að sjálfsögðu eru öll velkomin, bæði þau sem eru að æfa sig í íslensku og eins þau sem vilja koma og leggja orð og setningar í frasapúkkið.
Frasamessan hefst kl. 17:00 og lýkur 17:45. Ekki þarf að skrá sig, bara mæta og hafa gaman.
Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Suðurlands.