17.8 C
Selfoss

Salat með risarækjum

Vinsælast

Þórir Ólafsson er matgæðingur vikunnar.

Ég vil þakka Sævari vini mínum fyrir þessa tilnefningu, loksins segja sumir.

Eins og Sævar kom inn á þá er ég liðtækur í eldhúsinu við kökubakstur, brauðgerð og eldamennsku. Mig langar að deila með ykkur uppskrift sem ég leita oft í og sérstaklega þegar vel viðrar. Þetta er salat með risarækjum sem fer vel í maga og gott er að fá sér hvítvín með.

600 g risarækjur
20 ml tandoori masala krydd
2-3 hvítlauksrif
5-6 langir grillpinnar
250 ml kínóa
200 g piccolotómatar
2 stk. lárpera,
1 stk. stórt mangó
60 g klettasalat
1 stk. rauðlaukur
10 g basilíka
10 g steinselja
10 g kóríander
1 stk. límóna
2 msk. hunang
60 ml ólífuolía
50 g ristuð og söltuð graskersfræ

Aðferð:

1. Leggið grillpinnana í vatn svo þeir brenni síður á grillinu.
2. Affrystið rækjur og þerrið. Setjið í skál ásamt tandoori masala og ólífuolíu og pressið hvítlauksrif saman við. Blandið vel saman og látið marinerast í 30 mín. Saltið rækjurnar eftir smekk áður en þær eru þræddar á grillpinna.
3. Setjið 500 ml. af vatni í lítinn pott ásamt svolitlu salti og náið upp suðu. Bætið kínóa út í pottinn, lækkið hitann svo það rétt kraumi í vatninu og sjóðið kínóa undir loki í 15-18 mín. Takið af hitanum og látið standa undir loki í nokkrar mín. Færið svo í stóra skál og látið kólna.
4. Skerið lárperu, tómata og mangó í bita. Sneiðið rauðlauk eftir smekk í strimla. Saxið kryddjurtir. Bætið út í skálina með kínóa.
5. Rífið börk af límónu saman við hunang og 60 ml. af ólífuolíu. Kreistið sirka 2 msk. af límónusafa saman við hunangið og olíuna og pískið vel saman. Hrærið saman við salatið.
6. Grillið rækjurnar við háan hita í um 2-3 mín á hvorri hlið.
7. Bætið rækjum, graskersfræjum og klettasalati út í skálina og blandið vel saman.
Smakkið til með salti og kreistið að lokum meiri límónusafa saman við eftir smekk.

 

Ég vil skora á Daða Má Sigurðsson, nýráðinn deildarstjóra upplýsingatæknisviðs Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Hann lumar á góðum uppskriftum veit ég fyrir víst, enda stofnaði hann matarklúbb sem hittist reglulega og töfrar fram dýrindis rétti frá öllum heimshornum.

Nýjar fréttir