17.8 C
Selfoss

FSu sigraði Ungt umhverfisfréttafólk

Vinsælast

Landvernd heldur árlega keppnina „Ungt umhverfisfréttafólk“ þar sem ungmenni fá vettvang til þess að kynna sér umhverfismál og koma upplýsingum á framfæri á skapandi hátt. Fjölbrautaskóli Suðurlands bar sigur úr býtum í ár. Sigurvegurunum er boðið að taka þátt í alþjóðlegu keppninni Young Reporters for the Environment. Af fimm verkefnum sem rötuðu í úrslit átti FSu tvö, verkefnin „Kára hval“ eftir Axel Sturlu, Konráð Inga og Sunnu Hlín og „Afneitun manns“ eftir Ólöfu Völu.

Ljósmynd: Fjölbrautaskóli Suðurlands.

Kári hvalur, sem er barnabók um samnefndan hval, sigraði keppnina. Í bókinni er sagt frá ævintýrum hans í ljóðrænum texta en hún er í raun ekki bók fyrir börn þar sem Kári hvalur lendir í hræðilegum atburðum og missir að lokum foreldra sína. Verkefnið er því sterk ádeila á hvalveiðar Íslendinga. Höfundar bókarinnar sáu einnig um að myndskreyta hana.

Mynd: Fjölbrautaskóli Suðurlands.

Verkefnið var upphaflega unnið í landafræði þar sem nemendur þurftu að skoða vandamál í sínu nærumhverfi sem tengjast hafinu. Þar kviknaði þessi hugmynd sem þróaðist í þetta frábæra verkefni. Verkefnið er unnið á hverri önn í landafræði og nemendur hvattir til að taka þátt í keppni Landverndar og nú hefur umhverfisfræðin einnig ákveðið að hvetja nemendur til þátttöku í þessu frábæra verkefni,“ segir á heimasíðu FSu.

Nýjar fréttir