17.8 C
Selfoss

Allir dagar eru plokkdagar hjá Elínu Birnu

Vinsælast

Elín Birna Bjarnfinnsdóttir plokkari frá Eyrarbakka er einn af öflugustu plokkurum landsins. Það má segja að það sé stór plokkdagur hjá henni um það bil þrisvar til fjórum sinnum í viku miðað við það sem hún birtir af verkefnum sínum á Facebook-síðunni Plokk á Íslandi. Það virðist engu skipta hvað árstíð er eða veður. Hún plokkar í kringum heimabæinn sinn Eyrarbakka, fjöruna þar og í kringum helstu umferðaræðar og þjóðveginn til og frá bænum. Í fyrra var Elín Birna verðlaunuð fyrir framlag sitt til umhverfismála í sveitarfélaginu Árborg.

Elín Birna er öflugur plokkari.
Ljósmynd: Einar Einarsson.

Hún er ein af átta þúsund Íslendingum sem mynda hópinn Plokk á Íslandi á Facebook sem stofnaður var í byrjun árs 2018. Í framhaldi af því reis upp þessi sterka fjöldahreyfing sem hefur það eitt að leiðarljósi að taka upp rusl og fjarlægja úr náttúrunni. Meðlimir hópsins eru misjafnlega öflugir en allir hafa þeir tilgang því allir taka þeir þátt í að hvetja og þakka þeim sem ganga hvað vasklegast fram. Elín er sannarlega ekki ein þar og má segja að landvættirnar í plokkinu séu: Tómas Knútsson og Blái Herinn á Reykjanesi, Svavar Hávarðsson, Mjöll Þórarinsdóttir og Árni Guðmundsson í borginni, Sigríður Kristjánsdóttir í Hveragerði, Ása María Ásgeirsdóttir á Flúðum og Elín Birna. Svo einhver séu nefnd af mörgum.

Elínu bregður fyrir í auglýsinga- og kynningarefni fyrir Stóra plokkdaginn sem er á sunnudaginn. “Okkur finnst skipta máli að varpa ljósi á frábært starf þessara ötulu plokkara um allt land sem kalla alla daga stóra plokkdaga. Þau eru okkur svo mikill innblástur,” segir Einar Bárðarson, stofnandi Stóra plokkdagsins og félagi í Rótarýhreyfingunni. En Rótarýhreyfingin skipuleggur Stóra plokkdaginn með stuðningi frá Landsvirkjun og Umhverfis- orku og auðlindaráðuneytinu. “Vonandi verður hún okkur öllum hvatning til að taka til hendinni á sunnudaginn og ganga vel um landið okkar.”

Nýjar fréttir