Selfyssingar fögnuðu sumardeginum fyrsta í blíðskaparveðri í dag. Í tilefni dagsins var opið hús á ýmsum stöðum í bænum, þar á meðal listasmiðjur fyrir börn, ljósmyndasýningar, handverksmarkaðir og tónleikar. Skátafélagið Fossbúar leiddu skrúðgönguna ásamt Lúðrasveit Selfoss. Skrúðgangan endaði við Glaðheima þar sem Fossbúar voru með ýmislegt á seyði fyrir alla fjölskylduna.
Ljósmyndari Dagskrárinnar var á staðnum og fangaði stemninguna.